Öku 2

Ö2

Gott er að taka Ökuskóla 2 um tveimur mánuðum fyrir bílprófið. Náminu er skipt upp í 6 lotur og fer alfarið fram á netinu á þínum eigin hraða.

Lotur

Í Öku-Akademíunni eru öll þau fög sem þarf að læra fyrir bóklega þátt ökuprófsins kennd. Náminu er skipt í lotur og við lok hverrar þeirra er stutt kaflapróf. Næsta lota opnast 21 klst síðar vegna reglna Samgöngustofu. Námskeiðinu lýkur svo með prófi úr öllu efninu.

Námsgögn og æfingapróf innifalin

Allt námsefni er til staðar í námskerfi Öku-Akademíunar. Nemendur geta valið um að lesa eða hlusta á talgervil. Auk þess er fjöldi æfingaprófa til staðar sem tryggja betri árangur og undirbúning fyrir skriflega bílprófið.

Uppbygging námsins

1. Upprifjun á Ökuskóla 1

Efnistök
Bílprófið  |  Ungir ökumenn í umferðinni  |  Viðhorf og akstur  |  Áhætta og áhættumat  |  Flokkar umferðarmerkja  | Hámarkshraði á vegum  |  Hvaða ökutækjum má aka með B-réttindum?  |  Umferðarstjórnun lögreglu  |  Stöðvun og lagning ökutækja  |  Umferðarmerkin  |  Samantekt  |  Lotupróf

Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu, leikni og hæfni sem hann hefur aflað sér í Ökuskólanum til að þekkja:
…það að aka er sífellt nám sem nær í gegnum allt lífið.
…að ungir ökumenn eiga til að ofmeta eigin hæfni og vanmeta aðstæður í umferðinni.
…að ekki er nóg að vera tæknilega góður að aka. Viðhorfin þurfa líka að vera í lagi.
…hvað felst í varnar- og vistakstri.
…hvernig helstu flokkar umferðarmerkja líta út og þú vitir hvað merkin tákna.
…hvaða reglur gilda um hámarkshraða við mismunandi aðstæður.
…hvaða ökutækjum má aka með B-réttindum.
…hvaða reglur gilda um umferðarstjórnun lögreglu.
…hvar má og má ekki leggja ökutækjum.

2. Umferðarsálfræði
Efnistök
Víma, þreyta, veikindi  |  Syfja og akstur  |  Tilfinningar og akstur  |  Lyf og akstur  |  Áfengi og akstur  |  Viðurlög og refsingar  |  Bráðabirgðar- og fullnaðarskírteini  |  Ökuleyfissvifting  |  Sektir og refsipunkta  |  Akstur yfir hámarkshraða  |  Samantekt  |  Lotupróf

Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu, leikni og hæfni sem hann hefur aflað sér í Ökuskólanum til að þekkja:
…hvaða atriði hafa áhrif á getu fólks til þess að aka bíl.
…að syfja og akstur fer ekki vel saman og að þú vitir hvernig best er að bregðast við slíkum aðstæðum.
…að tilfinningalegt ójafnvægi getur haft mikil áhrif á getu fólks til þess að aka.
…að veikindi og lyf geta haft áhrif á getu fólks til þess að aka.
…að áfengi og akstur eiga aldrei samleið.
…hvaða afleiðingar það hefur ef ökumenn brjóta af sér í umferðinni.
…hvaða eðlismunur er á bráðbirgða- og fullnaðarskírteini.
…hvaða reglur gilda um ökuleyfissviptingar á Íslandi.
…hvaða afleiðingar það hefur að aka sviptur ökuréttindum.
…hvaða afleiðingar það getur haft brjóti ökumenn af sér í umferðinni.
…hvaða kostir fylgja því að aka löglega.

3. Áhættuþættir umferðarinnar
Efnistök
Valdapíramídinn í umferðinni  |  Skoðun ökutækja  |  Að draga aðra bíla  |  Forgangur í umferðinni  |  Forgangsreglur  |  Umferðarsálfræði  |  Sjón og skynjun  |  Rétt beiting sjónarinnar  |  Jaðarsjónsvið  |  Jaðarsjónsvið og hraði  |  Athygli og skynfæri  |  Öryggisbelti, höfuðpúðar og loftpúðar  |  Öryggisbúnaður  |  Loftpúðar  |  Nýjungar í öryggisbúnaði  |  Samantekt  |  Lotupróf

Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu, leikni og hæfni sem hann hefur aflað sér í Ökuskólanum til að þekkja:
…valdapíramídann í umferðinni.
…hvaða reglur gilda um skoðun ökutækja á Íslandi.
…að ef verulegar breytingar eru gerðar á bílum þarf að færa þá til skoðunar.
…helstu forgangsreglur sem gilda í umferðinni.
…að gott líkamlegt og andlegt ástand, ásamt reynslu og réttum viðhorfum skipta máli í umferðinni.
…að rétt beiting sjónar skiptir miklu máli við akstur.
…hvað hraðablinda er.
…til helstu skynfæra sem við notum við akstur.
…til helsta öryggisbúnaðar bíla.
…hvernig loftpúðar virka og hvaða hluti þarf að varast í sambandi við þá.

4. Ábyrgð ökumannsins
Efnistök
Tillitssemi í umferðinni  |  Vegfarendur  |  Börn í umferðinni  |  Aldraðir í ökumenn  |  Fatlaðir  |  Aðrir óvarðir vegfarendur  |  Hjólreiðafólk  |  Mótorhjól  |  Hestamenn  |  Bil á milli bíla  |  Viðbrags- hemlunar- og stöðvunarvegalengd  |  Kraftar sem virka á ökutækið  |  Kraftar hreyfiorku  |  Krafta hreyfiorku í árekstri  |  Hámarkshraði í íbúðahverfum  |  Bremsukerfi bíla  |  Ekið með eftirvagn eða kerru  |  Samantekt  |  Lotupróf

Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu, leikni og hæfni sem hann hefur aflað sér í Ökuskólanum til að þekkja:
…að tillitssemi er nauðsynleg í umferðinni og hvaða hópar þurfa á sérstakri tillitssemi að halda.
…að of lítið bil á milli ökutækja veldur mörgum árekstrum og hvað er hægt að gera til að meta hvort bil sé nægjanlegt.
…muninn á viðbragðs- hemlunar- og stöðvunarvegalengd.
…hvernig kraftar virka á bíl í akstri.
…hvernig hreyfiorka margfaldast með auknum hraða ökutækis.
…hvaða kraftar eru í gangi við akstur.
…af hverju hámarkshraði í íbúðarhverfum er víða 30 km/klst.
…hvernig bremsukerfi bíla virkar.
…hvað þarf að hafa í hugar þegar ekið er með kerru.

5. Opinber viðurlög við brotum

Efnistök
Tryggingar  |  Kostnaður umferðaóhappa  |  Tjónstilkynning  |  Eldur í bílum  |  Ábyrgð á ástandi bíls og akstri  |  Orsakir umferðarslysa  |  Áhættuþættir í umferðinni  |  Kælikerfi bíla  |  Olíukerfi bílsins  |  Gaumljós í mælaborði  |  Rafgeymirinn og rafkerfi bílsins | Bilanir í akstri  |  Rafbílar  |  Akstursöryggiskerfi  |  Árekstraröryggiskerfi  |  Er sjálfskipt bílpróf framtíðin?  |  Samantekt  |  Lotupróf

Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu, leikni og hæfni sem hann hefur aflað sér í Ökuskólanum til að þekkja:
…að skylda er að vátryggja vélknúin ökutæki á Íslandi.
…hvaða tryggingar eru skylda og hverjar eru valfrjálsar.
…hvað átt er við með endurkröfurétti trygginarfélaga.
…hvað skal gera ef þú lendir í tjóni í umferðinni.
…hvaða ábyrgð eigandi bíls ber.
…hvaða ábyrgð ökumaður ber á akstri og ástandi bíls.
…hvað skal gera ef eldur kviknar í bíl.
…hvernig kæli- smur og rafkerfi bíla virka.
…þýðingu helstu gaumljósa í mælaborði bíla.

6. Slys og skyndihjálp
Efnistök
Komið að slysi  |  Að tryggja öryggi á slysstað  |  Hvernig tryggjum við öryggi?  |  Að sækja hjálp  |  Að veita skyndihjálp  |  Blástursaðferð – endurlífgun  |  Áverkar á höfði, hálsi eða baki  |  Ofkæling  |  Hliðarlega  |  Hjálparsími Rauða krossins  |  Spennum beltin alltaf!  |  Samantekt  |  Lotupróf

Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu, leikni og hæfni sem hann hefur aflað sér í Ökuskólanum til að þekkja:
…grunnatriði í skyndihjálp.
…4 skref skyndihjálpar þegar komið er að slysi.
…hvað skal gera þegar komið er að slysi.
…hvernig meta á ástand slasaðra.
…hvernig skal bregðast við ef komið er að slysi.
…hvernig skal beita endurlífgun.
…blástursaðferðina.
…hvað skal gera ef grunur leikur á áverkum á höfði, hálsi eða baki.
…hvernig skal bregðast við ef komið er að manneskju sem hefur ofkælst.
…hvað læst hliðarlega er og í hvaða tilvikum á að beita henni.
…að betra er að gera sitt besta en standa hjá og gera ekki neitt ef komið er að slysi.

Lokapróf

Þegar nemendur hafa lokið 6. lotu þá þarf að standast lokapróf sem er krossapróf.

Prófið samanstendur af 30 krossaspurningum. Því er skipt upp í tvo hluta með 15  spurningum í hvorum hluta. Hver spurning er með 3 svarliðum. Alltaf er að minnsta kosti eitt svar rétt, en þau geta líka verið tvö eða jafnvel að allir þrír liðirnir séu réttir. Þú mátt ekki hafa meira en 5 röng svör í hvorum hluta fyrir sig eða alls 10 röng svör.

Allt námsefni er til staðar í ökuskóla Öku-Akademíunar og ekki er þörf á sérstakri kennslubók. Námið er uppbyggt þannig að nemendur þurfa ekki að lesa þar sem talgervil er innbyggður inn í námið sem getur lesið upphátt allt kennsluefnið. Auk þess eru ókeypis æfingapróf sem eru vel til þess fallin að tryggja góðan árangur og undirbúning fyrir skriflega lokaprófið.

Viltu spara?

Öku 1 & 2

Þú færð bóklega námið á betra verði ef þú kaupir Ö1 og Ö2 saman. Öll námsgögn eru innifalin. 

24.900 kr.

Öku 2

14.500 kr.