Öku 1

Ö1

Ökuskóli 1 er tekinn samhliða fyrstu ökutímunum. Náminu er skipt upp í 6 lotur og fer alfarið fram á netinu á þínum eigin hraða.

Lotur

Í Öku-Akademíunni eru öll þau fög sem þarf að læra fyrir bóklega þátt ökuprófsins kennd. Náminu er skipt í lotur og við lok hverrar þeirra er stutt kaflapróf. Næsta lota opnast 21 klst síðar vegna reglna Samgöngustofu. Námskeiðinu lýkur svo með prófi úr öllu efninu.

Námsgögn og æfingapróf innifalin

Allt námsefni er til staðar í námskerfi Öku-Akademíunar. Nemendur geta valið um að lesa eða hlusta á talgervil. Auk þess er fjöldi æfingaprófa til staðar sem tryggja betri árangur og undirbúning fyrir skriflega bílprófið.

Uppbygging námsins

1. Ökunámsferlið

Efnistök
Upphaf ökunáms  |  Akstur og lífsstíll  |  Ferli ökunáms  |  Stafræn ökunámsbók  |  Akstur og kennsla  |  Ökuprófið  |  Ökuskírteinið  |  Almenn ökuréttindi B-réttindi  |  Tillitssemi í umferðinni  |  Stofnanir sem tengjast umferðinni  |  Umferðarmerkin  |  Út í umferðina  |  Samantekt  |  Lotupróf

Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu, leikni og hæfni sem hann hefur aflað sér í Ökuskólanum til að þekkja:
…þekkja reglur sem gilda um ökunám á Íslandi og hvaða ökutækjum má aka með B-réttindum.
…að tillitssemi skiptir miklu máli í umferðinni og hvaða hópum vegfarenda þarf að sýna sérstaka tillitssemi.
…flokka umferðamerkja.
…viðvörunarmerki og merkingu þeirra.
…mikilvægar skilgreiningar sem tengjast umferðinni.

2. Bíll og búnaður

Efnistök
Forgangsreglur í umferðinni  |  Hægri forgangur  |  Forgangur hópbifreiða  |  Forgangur þar sem vegur þrengist  |  Forgangur á gangbrautum  |  Forgangsreglur: Varúð hægri réttur  |  Forgangsreglur: Víkja fyrir umferð sem kemur á móti  |  Forgangsreglur: Aðalbrautamerki  |  Forgangsreglur: Aðalbrautin liggur til hægri  |  Forgangsreglur: Stöðvunarskylda  |  Forgangsreglur: Forgangur á umferð frá hliðarvegi  |  Forgangur á hringtorgum  |  Umferðarstjórn lögreglu  |  Umferðarstjórn lögreglu  |  Valdapýramídinn í umferðinni  |  Hámarkshraði á vegum  |  Umferðarljós  |  Umferðarljós með beygjuljósi  |  Beygt til vinstri á umferðaljósum  |  Bannmerki  |  Bremsukerfi bíla  |  Fótbremsa og handbremsa  |  Samantekt  |  Lotupróf

Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu, leikni og hæfni sem hann hefur aflað sér í Ökuskólanum til að þekkja:
…helstu forgangsreglur í umferðinni.
…hvernig aka skal um hringtorg.
…hvaða reglur gilda um umferðarstjórnun lögreglu.
…hvernig valdapíramídi umferðarinnar er.
…reglur um hámarkshraða.
…hvernig bann- og boðmerki líta út og vita merkingu þeirra.
…helstu atriði sem varða bremsukerfi bíla.

3. Umferðarheild
Efnistök
Stýrisbúnaður og dekk  |  Mengun frá ökutækjum  |  Hvar má ekki aka?  |  Kælikerfi bíla  |  Merkjagjöf við akstur  |  Beinskipting: Kúpling og gírkassinn  |  Sjálfskipting  |  Ljósabúnaður bílsins  |  Hvaða ljós eiga að vera framan á bílnum?  |  Hvaða ljós eiga að vera aftan á bílnum?  |  Mismunandi bílvélar  |  Boðmerki  |  Upplýsingamerki  |  Bílar og umhverfið  |  Samantekt  |  Lotupróf 

Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu, leikni og hæfni sem hann hefur aflað sér í Ökuskólanum til að þekkja:
…helstu forgangsreglur í umferðinni.
…hvernig aka skal um hringtorg.
…hvaða reglur gilda um umferðarstjórnun lögreglu.
…hvernig valdapíramídi umferðarinnar er.
…reglur um hámarkshraða.
…hvernig bann- og boðmerki líta út og vita merkingu þeirra.
…helstu atriði sem varða bremsukerfi bíla.

4. Umferðarreglur

Efnistök
Bættur öryggisbúnaður bíla  |  Öryggisbelti, höfuðpúðar og loftpúðar  |  Loftpúðar  |  Stöðvun og lagning ökutækja  |  Stöðvun og lagning  |  Staða á vegi  |  Aðreinar og fráreinar  |  Þjónustumerki  |  Pústkerfi  |  Akstur í umferð: Akreinar  |  Val á akreinum og akreinaskipti  |  Vegvísir  |  Akreinamerki  |  Sjón og skynjun  |  Samantekt  |  Lotupróf

Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu, leikni og hæfni sem hann hefur aflað sér í Ökuskólanum til að þekkja:
…til helsta öryggisbúnaðar bíla.
…hvað felst í stöðvun og lagningu og hvar má ekki stöðva og leggja.
…hvernig staðsetja skal bíl við mismunandi aðstæður.
…hvernig á að aka um að- og fráreinar.
…þjónustumerki og merkingu þeirra.
…hvernig pústkerfi bíla virkar.
…hvernig velja skal akreinar á vegi með margar akreinar.
…vegvísa- akreinamerki og merkingu þeirra.

5. Viðhorf gagnvart umferðinni

Efnistök
Bil á milli bíla  |  Viðbrags- hemlunar- og stöðvunarvegalengd  |  Höldum fókus í umferðinni |  Leyfilegur hámarkshraði  |  Rafkerfi bíla  |  Olíukerfi bíla  |  Mælaborðið og gaumljós  |  Gaumljós í mælaborðinu  |  Miðflóttakraftur, veggrip og hreyfiorka  |  Miðflóttakraftur  |  Bráðabirgðamerki  |  Undirmerki  |  Önnur merki  |  Samantekt  |  Lotupróf

Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu, leikni og hæfni sem hann hefur aflað sér í Ökuskólanum til að þekkja:
…vita hvernig meta má bil á milli ökutækja.
…vita mun á viðbragðs- hemlunar- og stöðvunarvegalengd.
…vita hvernig sjón og skynjun hennar eru við akstur.
…vita um tilgang rafgeymis í bílum og hvaða hluti þarf að hafa í huga í sambandi við hann.
…vita um tilgang olíukerfis í bílum og hvaða hluti þarf að hafa í huga í sambandi við olíuna.
…þekkja helstu gaumljós sem geta kviknað í mælaborði bíla.
…vita hvaða kraftar virka á ökutæki við akstur.
…þekkja bráðabirgða- og undirmerki og merkingu þeirra.
…þekkja umferðarmerki í flokknum önnur merki og vita merkingu þeirra.

6. Umferðarskilti
Efnistök
Akstur á þjóðvegum  |  Akstur um jarðgöng  |  Ekið á þjóðvegum: framúrakstur bannaður  |  Ekið á þjóðvegum: erfiðar aðstæður  |  Ekið á þjóðvegum: blindhæð  |  Akstur í myrkri  |  Akstur á malarvegum  |  Vetrarakstur  |  Vetrarakstur: snjór  |  Vetrarakstur: veður og færð | Vetrarakstur – hálka Framúrakstur  |  Að hleypa framúr  |  Framúrakstur: hægra megin  |  Áhætta og áhættumat  |  Ekið með kerru  |  Bakkað  |  Umferðarslys: orsakir  |  Yfirborðsmerkingar  |  Yfirborðsmerkingar á vegi  |  Samantekt  |  Lotupróf

Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu, leikni og hæfni sem hann hefur aflað sér í Ökuskólanum til að þekkja:
…hvað þarf helst að hafa í huga við akstur á þjóðvegum.
…hvað þarf að varast þegar ekið er í myrkri.
…hvað þarf helst að hafa í huga þegar ekið er á malarvegum.
…hvað þarf að haga í huga þegar ekið er að vetrarlagi.
…hvernig haga skal framúrakstri.
…hvað felst í varnarakstri.
…hvernig best er að haga akstri með kerru og hættur sem fylgja að aka með þær.
…hvað þarf í huga þegar ökutæki er bakkað og eins þegar snúa skal við á vegi.
…helstu tölfræði umferðarslysa á Íslandi.
…þýðingu yfirborðsmerkinga.

Lokapróf

Þegar nemendur hafa lokið 6. lotu þá þarf að standast lokapróf sem er krossapróf.

Prófið samanstendur af 30 krossaspurningum. Því er skipt upp í tvo hluta með 15  spurningum í hvorum hluta. Hver spurning er með 3 svarliðum. Alltaf er að minnsta kosti eitt svar rétt, en þau geta líka verið tvö eða jafnvel að allir þrír liðirnir séu réttir. Þú mátt ekki hafa meira en 5 röng svör í hvorum hluta fyrir sig eða alls 10 röng svör.

Allt námsefni er til staðar í ökuskóla Öku-Akademíunar og ekki er þörf á sérstakri kennslubók. Námið er uppbyggt þannig að nemendur þurfa ekki að lesa þar sem talgervil er innbyggður inn í námið sem getur lesið upphátt allt kennsluefnið. Auk þess eru ókeypis æfingapróf sem eru vel til þess fallin að tryggja góðan árangur og undirbúning fyrir skriflega lokaprófið.

Viltu spara?

Öku 1 & 2

Þú færð bóklega námið á betra verði ef þú kaupir Ö1 og Ö2 saman. Öll námsgögn eru innifalin. 

24.900 kr.

Öku 1

14.500 kr.