Skilmálar
Viðskiptaskilmálar
Skráning og greiðsla námskeiðsgjalds
Við skráningu á námskeið samþykkir viðskiptavinur greiðslu á námskeiðsgjaldi og við skráningu telst kominn á skuldbindandi samningur milli aðila. Öll námskeið Skóla-Akademíunar eru á netinu og opnast strax aðgangur að námi og fæst námskeiðsgjald því ekki endurgreitt.
Notkunarskilmálar
Skilmálarnir eiga við um notkun á vefkökum á vefsíðu þessari
Skóla-Akademían notar svokallaðar vefkökur eða vefkökur til að afla upplýsinga um ferðir notenda um vefinn í því skyni að efla hann og gera hann aðgengilegri. Skóla-Akademían skráir engar upplýsingar um einstaka notendur með þessari tækni svo að upplýsingar um þig eða ferðir þínar um vefinn eru hvorki vistaðar né notaðar á nokkurn hátt. Athugaðu að þú getur stillt vafrann þannig að hann heimili ekki vefkökur eða vari þig við notkun þeirra. Við leggjum höfuðáherslu á varðveislu þessara gagna og erum við eigendur þeirra gagna sem safnast og því getum við sagt með vissu að gögnin sem safnast eru ekki seld til þriðja aðila.
Persónuvernd og öryggi við skráningu
Þær persónulegu upplýsingar sem þú veitir Skóla-Akademíuna um þig á vefnum verða einungis notaðar til að bæta þjónustu Skóla-Akademíunar við þig. Skóla-Akademían gerir sitt ýtrasta til að varðveita slíkar upplýsingar vel. Skóla-Akademían mun ekki láta þriðja aðila í té upplýsingar um þig. Þú hefur alltaf rétt á að nálgast, leiðrétta og banna notkun á hvers kyns persónuupplýsingum þínum á vefnum.
Skóla-Akademían er á engan hátt skyldugt til að fylgjast með að allar upplýsingar sem notandi setur inn séu réttar og axlar því ekki ábyrgð gagnvart þeim. Skóla-Akademían áskilur sér þó rétt til að yfirfara öðru hverju upplýsingar sem notendur setja inn og í einhverjum tilvikum fjarlægja þær án réttlætingar.
Persónuverndarstefna
Skóla Akademían ehf kt. 621208-0390, Laugavegi 58, 101 Reykjavík, hefur einsett sér að tryggja áreiðanleika, trúnað og öryggi persónuupplýsinga er varða nemendur ökuskólans, einstaklinga sem hafa samband við félagið, tengiliði sem hafa samband við félagið fyrir hönd lögaðila og þeirra aðila sem eiga viðskipti við félagið.
Þessari persónuverndarstefnu er ætlað að upplýsa þig um hvaða persónuupplýsingum félagið safnar, með hvaða hætti félagið nýtir slíkar persónuupplýsingar og hverjir fá aðgang að upplýsingunum. Stefna Skóla Akademíunnar er að geyma og vinna með eins lítið af persónugreinanlegum upplýsingum og mögulegt er til að getað þjónustað félagsmenn sína.
1. Tilgangur og lagaskylda
Skóla Akademían ehf leitast við að uppfylla í hvívetna persónuverndarlöggjöf og er stefna félagsins byggð á gildandi lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.
2. Hvað eru persónuupplýsingar?
Persónuupplýsingar eru sérhverjar persónugreindar eða persónugreinanlegar upplýsingar sem rekja má beint eða óbeint til tiltekins einstaklings.
3. Persónuupplýsingar sem Skóla Akademían vinnur með
Þegar einstaklingur skráir sig í nám hjá Skóla Akademíunni óskar félagið eftir að viðkomandi skrái nafn, kennitölu, heimilisfang, símanúmer og netfang. Þetta er gert í þeim tilgangi að geta stofnað aðgang fyrir nemandann í fjarnámskerfi skólans.
4. Miðlun persónuupplýsinga
Skóla Akademían meðhöndlar persónuupplýsingar í samræmi við lög og skuldbindur sig til að varðveita þær á öruggan og tryggan hátt. Persónuupplýsingar kunna að vera aðgengilegar aðilum sem sinna bókhaldsþjónustu, tækniþjónustu eða kennslu fyrir hönd Skóla Akademíunnar. Fyrirtækið mun að öðru leyti ekki miðla áfram upplýsingum sem skráðar hafa verið til þriðja aðila án samþykkis viðkomandi aðila nema þess sé krafist samkvæmt lögum eða í kjölfar dómsúrskurðar.
5. Vinnsla gagna
Vinnsla gagna fer fram svo lengi sem einstaklingur er skráður í nám hjá Skóla Akadamíeunni og er vistuð í sjö ár eftir það vegna kröfu í bókhaldslögum.
6. Þinn réttur
Þú átt rétt á því að fá upplýsingar um hvaða persónuupplýsingar Skóla Akademían býr yfir um þig og afrit af þeim gögnum.
Þú getur einnig átt rétt á að persónuupplýsingum um þig sé eytt, þær leiðréttar og vinnsla þeirra takmörkuð, ásamt því að andmæla vinnslu. Þá getur þú átt rétt á því að gögn um þig séu flutt til annars ábyrgðaraðila á tölvulesanlegu formi. Rétt er að benda á að þessi réttindi eru takmörkuð og eiga ekki við allar persónuupplýsingar eða í öllum tilvikum.
Óskir þú eftir því að nýta þér einhver af réttindum þínum eða hafir þú athugasemdir við meðhöndlun persónuupplýsinga getur þú haft samband við okkur með tölvupósti á oku@oku.is.
7. Vafrakökur (e. cookies)
„Cookies“ eða vafrakökur eru upplýsingar sem vefforrit neytanda geymir í tölvu hans að beiðni netþjóna. Skóla Akademían ehf notar þessar upplýsingar m.a. til að bera kennsl á notandann og vita hversu oft hann heimsækir vefsíðuna, hvað neytandi setur í körfuna sína, hvernig fyrri pantanir neytanda voru og til að kynna neytanda fyrir vörum sem geta vakið áhuga.
Vafrakökurnar eru hannaðar til að þjóna þörfum neytanda og notar Skóla Akademían ehf vefkökur aðallega til að gera vefsíðuna og vefverslunina ánægjulegri í notkun fyrir neytandann og bæta hans upplifun.
Vafrakökurnar eru ýmist notaðar fyrir tilteknar þjónustuleiðir eða til þess að safna tölfræðilegum upplýsingum til að bæta vefsíðu Skóla Akademíunnar ehf. Sumar vafrakökurnar eru tímabundnar og hverfa því þegar notandinn fer af vefsvæðinu en aðrar haldast lengur inni. Viðvarandi vafrakökur vistast á tölvu notandans og muna val og/eða aðgerðir hans á vefsvæðinu og muna því fyrri aðgerðir til að gera notandanum auðveldara fyrir að vafra um vefsvæðið. Að auki eru notaðar staðbundnar vafrakökur sem eru tengdar tilteknum markaðsherferðum og hverfa þegar herferðunum lýkur.
Flestir vafrar eru stilltir þannig að þeir taka sjálfvirkt við vafrakökum en hægt er að stilla þá þannig að neytandi þurfi að samþykkja hvert tilvik. Enda þótt neytandi kjósi að leyfa ekki vafrakökur getur neytandi samt sem áður notað flest alla hluta vefsíðu Skóla Akademíunnar ehf, þar á meðal verslunarkerfið.
Skóla Akademían ehf notar Google Analytics og Facebook Pixel til vefmælinga. Við hverja komu inn á vefsvæðið eru ýmsum nafnlausum upplýsingum safnað saman og þær sendar Skóla Akademíunni ehf, t.d. frá hvaða vefsvæði er komið, tími og dagsetning komu á vefsvæðið, leitarorð sem notað var og gerð vafra og stýrikerfis. Skóla Akademían ehf notar þessar upplýsingar svo til að gera endurbætur á vefsvæði sínu notendum sínum til hagsbóta.
Google Analytics og Facebook Pixel nota sínar eigin kökur en Skóla Akademían ehf áskilur sér rétt til að birta notendum vefsvæðisins auglýsingar í gegnum endurmarkaðssetningarkerfi Google Analytics og Facebook Pixel. Upplýsingarnar eru skráðar með aðstoð vafrakaka og geta þeir sem ekki vilja sjá slíkar auglýsingar slökkt á notkun þeirra.
Með því að nota vefsvæði Skóla Akademíunnar ehf samþykkir neytandi að fyrirtækið safni upplýsingum sjálfkrafa með vafrakökum.
8. Endurskoðun stefnu
Persónuverndarstefna Skóla Akademíunnar ehf. er endurskoðuð reglulega og stefna fyrirtækisins er að vera eins skýr og berorð um hvernig fyrirtækið safnar persónuupplýsingum og í hvaða tilgangi upplýsingarnar eru notaðar. Skóla Akademían ehf áskilur sér rétt til þess að breyta persónuverndarstefnunni hvenær sem er, án fyrirvara.
Allar fyrirspurnir um meðhöndlun persónuupplýsinga og persónuverndarstefnu Skóla Akademíunnar ehf skal senda á netfangið oku@oku.is eða í síma 777-3111.
Þessi persónuverndarstefna var sett þann 1. september 2025.