Öku 1
Ö1
Ökuskóli 1 er tekinn samhliða fyrstu ökutímunum. Náminu er skipt upp í 6 lotur og fer alfarið fram á netinu á þínum eigin hraða.
Lotur
Námsgögn og æfingapróf innifalin
Allt námsefni er til staðar í námskerfi Öku-Akademíunar. Nemendur geta valið um að lesa eða hlusta á talgervil. Auk þess er fjöldi æfingaprófa til staðar sem tryggja betri árangur og undirbúning fyrir skriflega bílprófið.
Uppbygging námsins
1. Ökunámsferlið
Efnistök
Upphaf ökunáms | Akstur og lífsstíll | Ferli ökunáms | Stafræn ökunámsbók | Akstur og kennsla | Ökuprófið | Ökuskírteinið | Almenn ökuréttindi B-réttindi | Tillitssemi í umferðinni | Stofnanir sem tengjast umferðinni | Umferðarmerkin | Út í umferðina | Samantekt | Lotupróf
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu, leikni og hæfni sem hann hefur aflað sér í Ökuskólanum til að þekkja:
…þekkja reglur sem gilda um ökunám á Íslandi og hvaða ökutækjum má aka með B-réttindum.
…að tillitssemi skiptir miklu máli í umferðinni og hvaða hópum vegfarenda þarf að sýna sérstaka tillitssemi.
…flokka umferðamerkja.
…viðvörunarmerki og merkingu þeirra.
…mikilvægar skilgreiningar sem tengjast umferðinni.
2. Bíll og búnaður
Efnistök
Forgangsreglur í umferðinni | Hægri forgangur | Forgangur hópbifreiða | Forgangur þar sem vegur þrengist | Forgangur á gangbrautum | Forgangsreglur: Varúð hægri réttur | Forgangsreglur: Víkja fyrir umferð sem kemur á móti | Forgangsreglur: Aðalbrautamerki | Forgangsreglur: Aðalbrautin liggur til hægri | Forgangsreglur: Stöðvunarskylda | Forgangsreglur: Forgangur á umferð frá hliðarvegi | Forgangur á hringtorgum | Umferðarstjórn lögreglu | Umferðarstjórn lögreglu | Valdapýramídinn í umferðinni | Hámarkshraði á vegum | Umferðarljós | Umferðarljós með beygjuljósi | Beygt til vinstri á umferðaljósum | Bannmerki | Bremsukerfi bíla | Fótbremsa og handbremsa | Samantekt | Lotupróf
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu, leikni og hæfni sem hann hefur aflað sér í Ökuskólanum til að þekkja:
…helstu forgangsreglur í umferðinni.
…hvernig aka skal um hringtorg.
…hvaða reglur gilda um umferðarstjórnun lögreglu.
…hvernig valdapíramídi umferðarinnar er.
…reglur um hámarkshraða.
…hvernig bann- og boðmerki líta út og vita merkingu þeirra.
…helstu atriði sem varða bremsukerfi bíla.
3. Umferðarheild
Stýrisbúnaður og dekk | Mengun frá ökutækjum | Hvar má ekki aka? | Kælikerfi bíla | Merkjagjöf við akstur | Beinskipting: Kúpling og gírkassinn | Sjálfskipting | Ljósabúnaður bílsins | Hvaða ljós eiga að vera framan á bílnum? | Hvaða ljós eiga að vera aftan á bílnum? | Mismunandi bílvélar | Boðmerki | Upplýsingamerki | Bílar og umhverfið | Samantekt | Lotupróf
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu, leikni og hæfni sem hann hefur aflað sér í Ökuskólanum til að þekkja:
…helstu forgangsreglur í umferðinni.
…hvernig aka skal um hringtorg.
…hvaða reglur gilda um umferðarstjórnun lögreglu.
…hvernig valdapíramídi umferðarinnar er.
…reglur um hámarkshraða.
…hvernig bann- og boðmerki líta út og vita merkingu þeirra.
…helstu atriði sem varða bremsukerfi bíla.
4. Umferðarreglur
Efnistök
Bættur öryggisbúnaður bíla | Öryggisbelti, höfuðpúðar og loftpúðar | Loftpúðar | Stöðvun og lagning ökutækja | Stöðvun og lagning | Staða á vegi | Aðreinar og fráreinar | Þjónustumerki | Pústkerfi | Akstur í umferð: Akreinar | Val á akreinum og akreinaskipti | Vegvísir | Akreinamerki | Sjón og skynjun | Samantekt | Lotupróf
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu, leikni og hæfni sem hann hefur aflað sér í Ökuskólanum til að þekkja:
…til helsta öryggisbúnaðar bíla.
…hvað felst í stöðvun og lagningu og hvar má ekki stöðva og leggja.
…hvernig staðsetja skal bíl við mismunandi aðstæður.
…hvernig á að aka um að- og fráreinar.
…þjónustumerki og merkingu þeirra.
…hvernig pústkerfi bíla virkar.
…hvernig velja skal akreinar á vegi með margar akreinar.
…vegvísa- akreinamerki og merkingu þeirra.
5. Viðhorf gagnvart umferðinni
Efnistök
Bil á milli bíla | Viðbrags- hemlunar- og stöðvunarvegalengd | Höldum fókus í umferðinni | Leyfilegur hámarkshraði | Rafkerfi bíla | Olíukerfi bíla | Mælaborðið og gaumljós | Gaumljós í mælaborðinu | Miðflóttakraftur, veggrip og hreyfiorka | Miðflóttakraftur | Bráðabirgðamerki | Undirmerki | Önnur merki | Samantekt | Lotupróf
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu, leikni og hæfni sem hann hefur aflað sér í Ökuskólanum til að þekkja:
…vita hvernig meta má bil á milli ökutækja.
…vita mun á viðbragðs- hemlunar- og stöðvunarvegalengd.
…vita hvernig sjón og skynjun hennar eru við akstur.
…vita um tilgang rafgeymis í bílum og hvaða hluti þarf að hafa í huga í sambandi við hann.
…vita um tilgang olíukerfis í bílum og hvaða hluti þarf að hafa í huga í sambandi við olíuna.
…þekkja helstu gaumljós sem geta kviknað í mælaborði bíla.
…vita hvaða kraftar virka á ökutæki við akstur.
…þekkja bráðabirgða- og undirmerki og merkingu þeirra.
…þekkja umferðarmerki í flokknum önnur merki og vita merkingu þeirra.
6. Umferðarskilti
Akstur á þjóðvegum | Akstur um jarðgöng | Ekið á þjóðvegum: framúrakstur bannaður | Ekið á þjóðvegum: erfiðar aðstæður | Ekið á þjóðvegum: blindhæð | Akstur í myrkri | Akstur á malarvegum | Vetrarakstur | Vetrarakstur: snjór | Vetrarakstur: veður og færð | Vetrarakstur – hálka Framúrakstur | Að hleypa framúr | Framúrakstur: hægra megin | Áhætta og áhættumat | Ekið með kerru | Bakkað | Umferðarslys: orsakir | Yfirborðsmerkingar | Yfirborðsmerkingar á vegi | Samantekt | Lotupróf
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu, leikni og hæfni sem hann hefur aflað sér í Ökuskólanum til að þekkja:
…hvað þarf helst að hafa í huga við akstur á þjóðvegum.
…hvað þarf að varast þegar ekið er í myrkri.
…hvað þarf helst að hafa í huga þegar ekið er á malarvegum.
…hvað þarf að haga í huga þegar ekið er að vetrarlagi.
…hvernig haga skal framúrakstri.
…hvað felst í varnarakstri.
…hvernig best er að haga akstri með kerru og hættur sem fylgja að aka með þær.
…hvað þarf í huga þegar ökutæki er bakkað og eins þegar snúa skal við á vegi.
…helstu tölfræði umferðarslysa á Íslandi.
…þýðingu yfirborðsmerkinga.
Lokapróf
Þegar nemendur hafa lokið 6. lotu þá þarf að standast lokapróf sem er krossapróf.
Prófið samanstendur af 30 krossaspurningum. Því er skipt upp í tvo hluta með 15 spurningum í hvorum hluta. Hver spurning er með 3 svarliðum. Alltaf er að minnsta kosti eitt svar rétt, en þau geta líka verið tvö eða jafnvel að allir þrír liðirnir séu réttir. Þú mátt ekki hafa meira en 5 röng svör í hvorum hluta fyrir sig eða alls 10 röng svör.
Allt námsefni er til staðar í ökuskóla Öku-Akademíunar og ekki er þörf á sérstakri kennslubók. Námið er uppbyggt þannig að nemendur þurfa ekki að lesa þar sem talgervil er innbyggður inn í námið sem getur lesið upphátt allt kennsluefnið. Auk þess eru ókeypis æfingapróf sem eru vel til þess fallin að tryggja góðan árangur og undirbúning fyrir skriflega lokaprófið.
Viltu spara?
Öku 1 & 2
Þú færð bóklega námið á betra verði ef þú kaupir Ö1 og Ö2 saman. Öll námsgögn eru innifalin.
24.900 kr.
14.500 kr.