Allur pakkinn

A-Ö

Taktu ökunámið í eigin hendur! Í þessum pakka eru Öku 1 og Öku 2 sem þú getur klárað á þínum hraða. Innifalið er allt námsefni, verkefnavefur, æfingapróf, 15 verklegar kennslustundir, aðgangur að bifreið ökukennara í prófinu.

Öku 1 og 2

Í pakkanum eru bóklegu námskeiðin Öku 1 og Öku 2 innifalin. Þau skiptast hvort um sig í sex þægilegar lotur sem þú getur tekið á þeim hraða sem henta þér. Við lok hverrar lotu er stutt kaflapróf. Næsta lota opnast 21 klst síðar vegna reglna Samgöngustofu. Námskeiðunum lýkur svo með prófi úr öllu efninu.

Námsgögn og æfingapróf innifalin

Allt námsefni er til staðar í námskerfi Öku-Akademíunar. Nemendur geta valið um að lesa eða hlusta á talgervil. Auk þess er fjöldi æfingaprófa til staðar sem tryggja betri árangur og undirbúning fyrir skriflega bílprófið.

Verkleg kennsla

Innifaldar eru 15 klst af verklegri ökukennslu hjá kennurum Öku-Akademíunnar. Kennslan fer fram á sjálfskiptri bifreið sem gerir námið enn einfaldara og minnkar stress. Þú getur svo seinna bætt beinskiptum við þegar og ef þú vilt.

Allur pakkinn

265.000 kr.