Nám

Ökunámskeiðin okkar eru hönnuð til að mæta þörfum ökunema og skila þeim sem góðum og öruggum bílstjórum út í umferðina.

Ö1

Taktu bóklega hlutann í Ökuskóla 1 í þægilegu fjarnámi.

Ö2

Taktu bóklega hlutann í Ökuskóla 2 í þægilegu fjarnámi.

Ö1+2

Taktu bóklega hlutann í Ökuskóla 1 og 2 í þægilegu fjarnámi á betra verði.

Öku­tímar

Þú getur tekið verklegu kennslustundirnar hjá okkur.

Aksturs­mat

Áður en fullnaðarskírteini er gefið út þarf akstursmat hjá ökukennara.

Allur pakkinn

Viltu fá allt á besta verðinu okkar? Þá er allur pakkinn fyrir þig.

Ferlið

Finna ökukennara

Ökunemi og kennari fara saman yfir námið og það sem framundan er. Finna kennara.

Sækja um námsheimild

Ökunemi sækir um námsheimild á island.is. Skila þarf passamynd til sýslumanns og læknisvottorði ef þess þarf.

Fyrsti ökutíminn

?????

Ökuskóli 1

Ökunemi velur sér ökuskóla fyrir bóklegt ökunám. Öku-Akademían býður upp á nám í Ökuskóla 1.

Ökutímar

Nemandi tekur að lágmarki 10 ökutíma til að mega hefja æfingaakstur. Tímarnir sem þarf geta orðið fleiri.

Æfingaakstur

Æfingaleyfi er gefið út í allt að 18 mánuði. Sækja þarf um heimild til æfingaaksturs hjá sýslumanni.

Ökuskóli 2

Ökunemi velur sér ökuskóla fyrir bóklegt ökunám. Öku-Akademían býður upp á nám í Ökuskóla 2.

Ökutímar

Eftir Ökuskóla 2 þarf að taka 2-3 ökutíma.

Ökuskóli 3

Ökuskóli 3 er bóklegt og verklegt ökunám.

Bóklegt próf

Taka má bóklegt próf tveimur mánuðum fyrir 17 ára aldur. Ef þú fellur þarftu að bíða í viku áður en þú tekur prófið aftur.

Verklegt próf

Taka má bóklegt próf tveimur vikum fyrir 17 ára aldur. Ef þú fellur þarftu að bíða í viku áður en þú tekur prófið aftur.

Bráðabirgða­skírteini

Ökunemi hefur bráðabirgða­skírteini í 1-3 ár áður en hægt er að sækja um fullnaðarskírteini á island.is.